Fyrir kennara

Lestrarpróf og greinandi orðalistar

Greinandi orðalisti fylgir efninu og er einfalt tæki fyrir kennarann til að sjá hvar nemandinn er staddur í lestrarþróun sinni.

Hvað gerir lestrarprófið?

Greinandi orðalisti fylgir Lesum lipurt efninu. Nemandinn les orð af listanum sem raðað er í þyngdarröð, frá einföldum orðum yfir í flóknari. Þegar nemandinn fer að tafsa, hika eða lesa rangt kemur í ljós hvar hann er staddur í lestrarþróun sinni.

Þannig fær kennarinn fljótt og á einfaldan hátt yfirsýn yfir stöðuna og getur séð á hvaða þrepi lestrartröppunnar nemandinn er, hvort sem það er hljóðkerfisvitund, byrjunarlestur, úrvinnsla, lestrarfærni eða lesskilningur.

Um leið sést hvað þarf að styrkja. Ef námið gengur hægt má skoða hvaða samhljóðar vefjast fyrir nemandanum og byrja þjálfun í viðeigandi kafla efnisins. Þannig er hægt að grípa strax inn í áður en lestrarvandi festir sig í sessi, það er snemmtæk íhlutun.

Hvernig hjálpar það kennaranum?

👀

Sér stöðuna strax

Kennarinn sér á fljótlegan hátt hvar nemandinn er staddur í lestrarþróuninni.

🎯

Veit hvar á að styrkja

Í ljós kemur hvaða grunnfærni og hvaða hljóð þarf að þjálfa betur.

⏱️

Grípur strax inn í

Snemmtæk íhlutun, brugðist er við áður en lestrarvandi festir sig í sessi.

💬

Gott í samtali

Handhægt þegar foreldrar spyrja um gang lestrarnámsins, staðan er tekin í fljótu bragði.

🪜

Tengt lestrartröppunni

Niðurstaðan vísar beint á þrep lestrartröppunnar sem nemandinn er á.

📚

Vísar á verkefni

Út frá stöðunni má velja verkefni í efninu sem henta hverju lestrarstigi.

Sjálfur orðalistinn og öll verkefnin fylgja Lesum lipurt efninu sem hægt er að kaupa.

Viltu nota efnið?

Greinandi orðalistinn og öll verkefnin eru hluti af Lesum lipurt efninu.